|
|
|
|
MAine coon á Íslandi
![]()
Sagan
Maine Coon – köttur með sögu
Maine coon er eitt elsta kattarkyn N.Ameríku, sem var til þegar um miðja 18 öld í Maine, í norðaustur ameríku.
Nafnið kemur til á sérstakann hátt. Fólkið í Maine N. Ameríku trúði í þá daga að þessi síðhærði köttur þeirra með bröndótta loðna skottið væri útkoma af pörun á milli kattar og þvottabjarnar. Á ensku er þvottabjörn racoon og þess vegna kemur nafnið Maine coon. (Genfræðilega séð er það samt ekki hægt). svartir/brúnir bröndóttir voru þó þeir sem voru kallaðir Maine coon en aðrir litir voru kallaðir Maine shags. Flestir ræktendur í dag þykir líklegast að upphaflega séu MCO blanda af stutthærðum húsketti annarsvegar en angóruketti eða öðru síðhærðum ketti sem borist hefur til Ameríku með víkingunum hinvegar.
Fyrsta skráða got MCO var árið 1861. Pabbinn í því goti var svartur og hvítur högin að nafni Captain Jenks Of The Horse Manners. Áhugi fyrir kattasýningum byrjaði um miðja 18 öld, þá var Maine coon mjög vinsæll, Cosie, brún bröndótt MCO læða vann BEST CAT á Madison Square garden show 1895. Í byrjun 19 aldar kom exotic persinn sterkur inn í Ameríku og dalaði þá áhuginn fyrir síðhærðum köttum og munaði litlu að það færi illa fyrir MCO. En nokkrum áhugasömum ræktendum tókst þó að viðhalda tegundinni og var það upp úr 1950 sem fólk fór aftur að taka eftir MCO að einhverju ráði, sýna þá og skrá ættir þeirra. 1968 tóku 6 ræktendur í Ameríku sig saman og stofnuðu MCBFA(Maine coon breeders & fanciers association) til að kynna, varðveita og halda utan um MCO. Í dag eru meðlimir um 1000 og ræktendur um 200.
Í kringum 1980 höfðu öll ræktunarfélög samþykkt tegundina og Maine coon á góðri leið með að öðlast sömu vinsældir og áður.
![]() |
Fyrsti Maine coon kötturinn sem var fluttur til Íslands til ræktunar var Escape´s Kontici og kom hann árið 2003 og fæddist fyrsta Maine coon gotið hjá Eagle-Storm kattarækt 2004. |
bravenet.com